Þessi er vægast sagt glæsilegur!
Fallegur í alla staði og virkilega klæðilegur. Kjóllinn er alveg aðsniðinn en afskaplega þægilegur og efnið létt og mjúkt viðkomu. Hálsmálið er -V- laga og töluvert flegið og með fallegri rykkingu í efninu. Einnig er kjóllinn rykktur í miðju alveg niður kjólinn sem gerir hann mjög fallegan og sparilegan. Ermarnar eru nokkuð víðar með þægilegri teygju í stroffi. Kjóllinn er aðeins síðari en margir aðrir stuttir kjólar hjá okkur, en síddin er nálægt hnjám. Við mælum klárlega með þessum!
- Efni: 95% Pólýester og 5% Elastane
- Lengd: Ca. 99 cm
- Mjúkur viðkomu og mjög léttur í sér
- Virkilega fallegur kjóll og sparilegur
- Klassískur og mikið notagildi!
- Litur: Rauður
- Módelið er ca.164cm á hæð og er í stærð UK8(S)